Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían hefur nú tekið við rekstri Lands & sona úr höndum Félags kvikmyndagerðarmanna, sem hefur gefið út blað með þessu nafni óslitið frá 1995, í samvinnu við önnur hagsmunafélög greinarinnar, Kvikmyndasjóð/miðstöð og sjónvarpsstöðvarnar. Í desember 2003 bættist við útgáfuna vefur þar sem fjallað er um kvikmyndir og sjónvarp frá ýmsum hliðum. Uppfært er allt að daglega og hægt er að gerast áskrifandi að nýju efni með því að skrá netfang sitt á vefinn.
Vefurinn www.logs.is er andlit íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirans útávið. Hér er hægt að finna fréttir, greinar, skoðanaskipti og margskonar upplýsingar.
Vefurinn verður hlið að þessum heimi fyrir alla þá Íslendinga sem áhuga hafa á þessum málaflokki. Púlsinn verður tekinn á þeim málum sem hæst bera hverju sinni, bæði heima og annarsstaðar. Óspart verður vísað í spennandi efni sem finna má annarsstaðar á vefnum. Markmiðið er að gera hann að ómissandi efnisveitu fyrir þá fjölmörgu sem óska eftir vitrænni en jafnframt spennandi umfjöllun um þetta svið.
Vefurinn er opinn öllum þeim sem hafa eitthvað til málanna að leggja um kvikmyndir og sjónvarp. Ritstjóri áskilur sér þó fullan rétt til að birta eða hafna efni eftir mati hverju sinni.
Hægt er að nálgast pdf skrár af eldri tölublöðum Lands & sona undir tenglinum hér til vinstri. Jafnframt verður þar að finna pdf skrár af þeim heftum Lands & sona sem út koma í pappírsformi, tvisvar á ári, vor og haust.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.