LAND & SYNIRLand & synir er málgagn kvikmyndagerðarmanna á Íslandi. Blaðið kom út um það bil annan hvern mánuð 1995 til 2004 þegar útgáfutíðni var breytt og kemur það nú út tvisvar á ári. L&S er leiðandi vettvangur fyrir umræðu um íslenska kvikmyndagerð og dagskrárgerð. Blaðinu er dreift ókeypis til meðlima Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, auk valdra aðila í stjórnkerfinu, menningargeiranum og fjölmiðlum. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían er útgefandi blaðsins ásamt vefútgáfu þess, www.logs.is. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.
|
| ||
Jan.-feb. 2001. EFNI: Úthlutun 2001, úthlutunarstefna Kvikmyndasjóðs, Ikingút, endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, Maður er nefndur, viðtal við Kristínu Pálsdóttur nýráðin konsúlent, uppgjör Edduhátíðar 2000.
Mars-apríl 2001 EFNI: Gagnrýni á Edduverðlaunin, umfjöllun gagnrýnenda um Villiljós, hverskonar myndir eiga börnin okkar að horfa á, Tómas Þorvaldsson um höfundarrétt, Árbæjarsafn heim til Hrafns, fyrsta úthlutun stutt- og heimildarmyndadeildar Kvikmyndasjóðs.
Maí-júní 2001 EFNI: Útboð Sjónvarpsins á leiknu efni, kynning á frumvarpi um kvikmyndalög, gagnrýni á Edduverðlaunin svarað, fjallað um heimildarmyndamessu á Íslandi, Ólafur H. Torfason um Blade Runner, mannlíki og mannskepnur, Þorkell Ágúst Óttarsson um Deus Ex Cinema, Einar Már Guðmundsson um togstreituna milli frjálsrar sköpunar og markaðshugsunar í kvikmyndum.
Júlí-ágúst 2001 EFNI: LalliJohns, á nám í kvikmyndaleik að vera hluti af leiklistarnámi, trúarvísanir í kvikmyndum, um mikilvægi Kvikmyndasafnsins.
September-október 2001. EFNI: Aldarminning Óskars Gíslasonar, fjallað um komandi Eddu, hversvegna taka íslenskir kvikmyndagerðarmenn ekki á hinum knýjandi spurningum veruleikans allt í kringum okkur, Ragnar Bragason fjallar um Toronto hátíðina í skugga 11. september, fjallað um handritanámskeið í Evrópu, Anna Th. Rögnvaldsdóttir skrifar um leikið sjónvarpsefni.
Nóvember-desember 2001. EFNI: Úthlutun Kvikmyndasjóðs 2002, Hrafn Gunnlaugsson um Mávahlátur, Málarinn og sálmurinn hans um litinn, Gæsapartí, leggur L&S of litla áherslu á sjónvarp, hverjir fengu Eddu 2001, uppgjör Kvikmyndahátíðar 2001, Evrópska kvikmyndaakademían, Gemsar, viðbrögð FK við nýjum kvikmyndalögum.
Janúar-apríl 2002. EFNI: Viðtal við Hrönn og Árna Sveinsbörn um Í skóm drekans, hvernig fellur Regína að dans- og söngvamyndahefðinni, Reykjavík Shorts & Docs kynnt, viðtal við pólska tökumannin Pawel Gula (Maður eins og ég), fagleg gæði og stafræna tæknin, viðtal við Einar Þór Gunnlaugsson um þær breytingar sem hann telur þurfa að gera á fjármögnun íslenskra kvikmynda.
Apríl 2002. Helgað myndunum á Reykjavík Shorts and Docs.
Maí-júní 2002. EFNI: Þema: hvert stefna stafrænar myndir - hringborðsumræður, hvernig stafræna tæknin gerir einyrkjum auðveldara fyrir, eykur frelsi og styrkir tjáningu. Um Cut and Paste, ágrip af skýrslu Aflvaka um leikið íslenskt sjónvarpsefni, deilurnar um heimildarmyndina Í skóm drekans, Tyrkjaránið, aðsókn á íslenskar bíómyndir.
Nóvember 2002. EFNI: Edda 2002. Magnús Magnússon heiðursverðlaunahafi, tilnefningar, allt um hátíðina og kosningarnar, andlit Eddu, væntanlegar bíómyndir.
Janúar-febrúar 2003. EFNI: Þema: Uppgjör ársins 2002, yfirlit yfir bíómyndir ársins, yfirlit yfir heimildarmyndir ársins, hverskonar stöðu hafa íslenskar myndir á heimamarkaði, Pam, Noi og mennirnir þeirra. Annað: þakkarræða Magnúsar Magnússonar á Eddu 2002, bækur og kvikmyndir, saga Kvikmyndasjóðs 1978-2002.
EFNI: Þema: staða og horfur í íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum; Ari Kristinsson fjallar um tilurð og stefnu Kvikmyndamiðstöðvar, raddir bransans, Hjálmtýr Heiðdal óskar eftir menningarstefnu stjórnvalda. Annað: Stormy Weather, nýtt starfsfólk Kvikmyndamiðstöðvar. |
Haust 2003.
EFNI: Edda 2003. Ólafur H. Torfason um ástina sem alheimsaflið ("ástin í íslenskum kvikmyndum" var þema Eddu 2003), kvikmyndahátíð Eddunnar, tilnefningar til Edduverðlauna, væntanlegar myndir, aðstandendur Eddu 2003, umfjöllun um væntanlegan vef L&S.
Fyrra hefti 2004 (september).
EFNI: Viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um málefni kvikmyndagerðar, viðtal við Baltasar Kormák formann SÍK um horfurnar framundan, allt um Nordisk Panorama í Reykjavík 2004, fjallað um nýlegar kvikmyndabækur, vetrardagskrá Bæjarbíós 04-05, uppgjör ársins 2003, umfjöllun um vef L&S.
Seinna hefti 2004 - Edduhefti.
EFNI: Tilnefningar 2004, Heiðursverðlaunahafinn Páll Steingrímsson, um hátíðina og kosningarnar, væntanlegt í bíó og sjónvarp.
Edduhefti 2005.
EFNI: Tilnefningar 2005, heiðursverðlaunahafinn Vilhjálmur Hjálmarsson, "Of mikið fyrir of lítið?" (leiðari), væntanlegar myndir, um hátíðina, uppgjör ársins 2004.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.