Greinar

Björn B. Björnsson: Sömu mistökin aftur? | 4.8.2010
Við gerð síðustu fjárlaga gerðu mennta- og menningarmálaráðuneytið og fjárlaganefnd alvarleg mistök þegar framlög ríkisins til kvikmyndasjóða voru skorin niður um 250 milljónir króna.
 
Ætlunin var að lækka útgjöld ríkisins en ný rauð skýrsla um fjármögnun íslenskra kvikmynda sýnir ljóslega að tekjur ríkisins lækkuðu a.m.k. jafn mikið niðurskurðinum. Sparnaðurinn var því minni en enginn - en skaðinn verulegur.

..meira

Björn Brynjúlfur Björnsson: Kvikmyndagerð og ferðaþjónusta | 11.5.2010
Kvikmyndir eru eitt öflugasta form landkynningar og hafa veruleg áhrif á straum ferðamanna um allan heim.
 
Landkynning eins og nú á að ráðast í fyrir 700 milljónir króna er markaðsátak þar sem greitt er fyrir að koma upplýsingum til fólks í gegnum auglýsingar og önnur markaðstæki. Vandinn er sá að fólkið sem á að fá skilaboðin er eðlilega ekki alltaf áhugasamt eða móttækilegt fyrir áreitinu.

..meira

Ragnar Bragason: Opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur, ráðherra menningarmála | 23.4.2010

Við síðustu fjárlagagerð voru gerð mistök þegar framlög ríkisins til kvikmyndagerðar voru skorin niður úr öllu valdi. Niðurskurðurinn nam 35% miðað við fyrra samkomulag. Þar var gert ráð fyrir að framlög ríkisins til kvikmyndasjóða yrðu 700 milljónir á þessu ári en eru nú aðeins 450 milljónir. Sá niðurskurður sem við horfum upp á færi með hvaða starfsgrein sem er í gröfina.


..meira

Björn Br. Björnsson: Framleiðsla kvikmynda skilar okkur góðum arði | 31.3.2010
Nýlega voru birtar niðurstöður könnunar á fjármögnun íslenskra kvikmynda sem framleiddar voru á árunum 2006 - 2009. (Með kvikmynd er hér átt við bíómyndir, leikið sjónvarpsefni, heimilda- og stuttmyndir). Þessi könnun færir okkur í fyrsta sinn staðreyndir um fjárhagslega þætti kvikmyndaframleiðslu á Íslandi. Frá sjónarhóli skattgreiðenda er meginniðurstaðan sú að þeir fjármunir sem ríkisvaldið fjárfestir í kvikmyndum skila sér að fullu til baka í formi launaskatta. Þá eru ótaldir aðrir beinir og óbeinir skattar. Fjárfesting í kvikmyndum skilar samfélaginu með öðrum orðum beinum fjárhagslegum arði.
..meira

Jón Egill Bergþórsson: Dagur Kári og gagnrýni | 6.3.2010
Ég fæ ekki lengur orða bundist. Enn verður Dagur Kári fyrir barðinu á skilningsleysi og sljóleika kvikmyndagagnrýnenda. Það dagblað sem stærir sig af því að vera stærst og mest á landinu, Fréttablaðið,  fær Dr. Gunna til að skrifa dóm um nýjustu mynd Dags Kára; The Good Heart. Ágætur dægurlagahöfundur sem ég veit þó ekki til að sé hæfari en miðasölustúlka/piltur í kvikmyndahúsi til að skrifa gagnrýni um kvikmynd. Enda er dómur hans allur því marki brenndur. Myndir Dags Kára eru langt frá öllum formúlum. Engin Hollywood ,,dægurlög" þar í gangi, svo það er kannski skiljanlegt að Dr. Gunni skuli ekki átta sig á ýmsu.
..meira

Áhugaverðar greinar | 1.3.2010

Tvær áhugaverðar greinar um niðurskurð til kvikmyndagerðar eru á heimasíðu Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, www.producers.is. Greinarnar eru eftir Hrönn Kristinsdóttur og Hilmar Sigurðsson. Grein Hrannar heitir Fáar en mikilvægar menningarmilljónir og grein Hilmars Ríkissjóður hagnast af framlögum í kvikmyndasjóði.

http://producers.is/Greinar/Lesagrein/115

http://producers.is/Greinar/Lesagrein/112


..meira

Um möguleika kvikmyndagerðar í kreppu | 25.2.2010

Hlynur Helgason birti á vefnum www.fugl.is áhugaverða grein um möguleika kvikmyndagerðar í kreppu. Í greininni bendir hann á að kvikmyndagerð í Argentinu var í mikilli sókn þegar bankakreppa skall á árið 2002. 

 

Greinin er aðgengileg hér:

http://fugl.is/hlynur_helgason/2010/02/kvikmyndager-i-kreppu-daemi-fra-argentinu.html

 


..meira

Þorgerður Katrín skrifar um niðurskurð | 10.2.2010
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrrverandi menntamálaráðherra birti pistilinn Kvikmyndir - upp á punt um niðurskurð til kvikmyndagerðar á Pressunni í gær. Pistillinn er aðgengilegur hér.
..meira

Opið bréf til utanríkisráðherra | 8.2.2010

Tómas Örn Tómasson: 
 
Blessaður Össur.
 
Mér hefur alltaf þótt barnsleg einlægnin þín gera þig trúverðugan stjórnmálamann. Það gerir þig svo mannlegan í þessum pólitíska stormi sem gengið hefur yfir Ísland. Það var gaman að sjá þig í fréttum RUV sl. föstudagskvöld þar sem þú horfðir á EXPO 2010 prufu-uppsetninguna og gast varla ráðið þér kæti. Þú áttar þig á nauðsyni þess að taka þátt í EXPO, til að kynna land og þjóð fyrir umheiminum. Sérstaklega núna þegar álit útlendinga á okkur er í sögulegu lágmarki.


..meira

Annað opið lettersbréf, og það til Mennta- og menningarmálaráðherra og fjármálaráðherra | 8.2.2010

Þorkell Sigurður Harðarson:

 

Kæru félagar, Katrín Jakobsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon.
 
Ég skrifa ykkur þetta opna lettersbréf í tilefni af umræðu sem átt hefur sér stað í kringum málefni RÚV, gjörninga Páls Magnússonar og orðræðu hans nú nýlega. Hluti af ástæðu þess að ég skrifa ykkur er einnig sú að við skipan Magnúsar Stefánssonar í stjórn RÚV nú nýverið virðist sem svo að ekki ríki skilningur á því hvernig málin ganga fyrir sig í samskiptum Útvarpsstjórans og stjórnarinnar sem á að bera ábyrgð og hafa eftirlit með efndum þjónustusamningsins um útvarp í almannaþágu.


..meira

Ekki missa af lestinni | 23.11.2009
Viðtal við Ólaf H. Torfason, nýjan formann Kvikmyndaráðs

 

Ásgrímur Sverrisson: Hinn kunni kvikmyndarýnir Ólafur H. Torfason var nýverið skipaður formaður Kvikmyndaráðs, hvers hlutverk er að veita stjórnvöldum ráðgjöf og gera tillögur um stefnu og markmið á sviði kvikmyndalistar. Mennta- og menningarmálaráðherra skipar í kvikmyndaráð til þriggja ára í senn, formann og varaformann án tilnefningar, en hina fimm fulltrúana ...


..meira

Eitt lítið opið lettersbréf til Katrínar Jakobsdóttur frá Nýja heiminum | 12.11.2009

Þorkell Sigurður Harðarsson:

Kæra Katrín, hæstvirtur menntamálaráðherra og samflokksmaður minn:
 
Hér er eitt lítið opið lettersbréf til þín frá Nýja heiminum.  Ástæða þess að ég skrifa þér í dag er sú að ég verð að benda þér á innsláttarvillu í niðurskurðartillögum í málaflokki sem varðar atvinnu mína, kvikmyndagerð. Þar sem þú ert æðsti yfirmaður kvikmyndamála á Íslandi í dag finnst mér réttast að beina þessu til þín svo að þú kippir þessu í liðinn strax.


..meira

Endurreisnarbíómyndir | 11.11.2009

Börkur Gunnarsson: Manifestó: Hvernig skal gera bíómyndir í endurreisninni á Íslandi

1. Aðeins skal gera myndir um samtímann. Ekki aðeins vegna skyldu okkar til að skýra samtímann heldur krefst kreppan þess.

2. Kvikmyndavélin er penni kvikmyndagerðamannsins. Of lengi hefur kvikmyndagerðalistin verið undir ofurvaldi framleiðendafyrirtækja og rithefðarinnar. Þannig hefur rithefðin lagt fram skrifuð handrit áður en kvikmyndavélinni er mundað og framleiðendur hafa styrkt þá hefð því þeir vilja hafa sérhvern útgjaldalið á hreinu áður en af stað er haldið. Þessu skal ljúka. Skrifa skal handritið með kvikmyndavélinni!


..meira

Hið raunverulega þjóðleikhús | 8.10.2009

Það er vert að benda lesendum á tvær greinar til viðbótar um niðurskurðinn til Kvikmyndasjóðs. Ágúst Guðmundsson skrifar í Fréttablaðið greinina Kvikmyndir skornar niður þar sem segir meðal annars:

"Íslenskar kvikmyndir eru hið raunverulega þjóðarleikhús ? myndirnar eru teknar upp um land allt og þær fara auðveldlega fyrir augu allra, hvar á landinu sem fólk býr. Þær hafna gjarnan í sjónvarpinu, þar sem þær hafa löngum verið helsta leikna innlenda efnið, einkum á stórhátíðum. Enn fremur eru þær fluttar til útlanda, sýndar í kvikmyndahúsum og í sjónvarpi víða um heim. Kunnugir telja að fátt selji Ísland betur en íslenskar kvikmyndir. Þær eru hin óbeina auglýsing sem gagnast betur en bein sölumennska. Á tímum niður­lægingar Íslands er meiri þörf á slíku en nokkru sinni fyrr." Greinina alla má lesa hér.


..meira

Fjöldauppsögn í fjárlagafrumvarpi! | 6.10.2009

Hilmar Sigurðsson (CAOZ): Í fjárlagafrumvarpi sem nú hefur verið lagt fram fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir að skera niður framlög til kvikmyndasjóðanna þriggja um 200 milljónir króna. Þetta er langhæsti niðurskurður á nokkurri menningartengdri starfsemi á fjárlögum fyrir mennta- og menningarmál. Framlag til kvikmyndasjóða fer úr 590 milljónum í 390 milljónir, samkvæmt frumvarpinu.

 

Árið 2006 var gert samkomulag milli menntamálaráðherra og fjármálaráðherra annars vegar og samtaka í íslenskri kvikmyndagerð hinsvegar um árleg framlög til kvikmyndagerðar. Samkvæmt því samkomulagi, átti framlag ársins 2009 að nema 620 milljónum en hækkun milli ára var skorin um helming, eða um 15%. Síðan áttu framlög samkvæmt samkomulaginu að nema 700 milljónum árið 2010, en nú er komið fram frumvarp þar sem framlagið sem er í samkomulaginu hefur verið skorið niður um 44%.


..meira

Álver eða bíómyndir? | 6.10.2009

"Er hæfileikaríkum íslendingum gert erfitt fyrir með fjársvelti? Er ekki einmitt hugvitið og arðbærar listgreinar sem við ættum að efla og styrkja? Hvað er í tízku í þjóðfélaginu: álver, íþróttir og 5-6 milljarðir í kirkjuna?" Þessar hugleiðingar eru fengnar frá Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur, en Land og synir leituðu til fjölda kvikmyndagerðarmanna og hér eru nokkur vel valin orð til viðbótar frá Hrafnkeli Stefánssyni handritshöfundi, Guðmundi Breiðfjörð hjá Senu og Sigríði Margréti Vigfúsdóttur, fulltrúa Íslands í MEDIA, kvikmyndaáætlun ESB.


..meira

Hvatning til landflótta | 6.10.2009

Ólafur Jóhannesson: Maður getur skilið að það þurfi að skera niður í listgreinum, hinsvegar er sá niðurskurðarmunur á framlagi til kvikmyndasjóðs og annarra listgreina svo mikill að það jarðar við annahvort prentvillu eða klára geðveiki. Með þessu verður ekki einasta okkur skotið afturábak um fimmtán ár heldur mun sú þekking og hæfni sem hefur byggst hægt og örugglega upp hljóta verulegan skaða af.

 


..meira

Kvikmyndagerð slátrað | 6.10.2009

Þetta var fyrirsögn á frétt Fréttablaðsins um helgina, þar sem meðal annars var rætt við Baltasar Kormák, Ragnar Bragason og Ara Kristinsson auk Katrínar Jakobsdóttur.  Þar segir Baltasar Kormákur meðal annars: "Það er bara verið að taka eina atvinnugrein og fórna henni á altari Alþjóðagjaldeyrissjóðsins," en hér má lesa fréttina alla.
 
Einnig var rætt við Ara í fréttum Stöðvar 2 sem má sjá hér, og hér má sjá framhaldsviðtal Stöðvar 2 við Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra, þar sem hún segir að líkur séu á að þetta verði endurskoðað.


..meira

Mikill niðurskurður fyrirhugaður! | 6.10.2009

Hjálmtýr Heiðdal: Fjárlög ársins 2010 voru lögð fram í nýliðinni viku og eins og við var að búast þá einkennast þau af því ástandi sem hér ríkir í efnahagsmálum. En fyrir kvikmyndagerðarmenn er það sérstaklega alvarlegt hversu áætlaður niðurskurður í framlögum til Kvikmyndamiðstöðvar er langt umfram það sem almennt er áætlað að skerða vegna menningarmála. Samanburður á niðurskurði hjá Kvikmyndamiðstöð og öðrum stofnunum sýnir hversu furðulegar þessar aðgerðir gagnvart KMÍ eru:


..meira

Frá ritstjóra: Draugagangur á Alþingi | 6.10.2009

Ásgeir H Ingólfsson: Á tyllidögum stæra Íslendingar sig ósjaldan af því að eiga elsta alþingi í heimi, þing sem er meira en þúsund ára gamalt ? þótt vissulega hafi orðið ansi margra alda hlé á störfum þess um tíma. En það er varla rétt að stæra sig af því að þingmenn þess séu jafn fornir ? en slíkt virðist manni þó ósjaldan raunin úr fjarlægð.

Tuttugasta öldin litaðist í listaheimum sterklega af því að nýjir miðlar komu fram og á meðan þeim gekk vel að ná lýðhylli þá gekk öllu treglegar að fá sömu virðingu og hinir eldri og settlegri listir. Það tók sinn tíma fyrir kvikmyndalistina, sem er ekki nema 114 ára gömul og því ungabarn í listheiminum, að öðlast virðingu menningarvita ? en í sannleika sagt hélt maður þó að sá slagur væri löngu búinn ...


..meira

 

 

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir allar greinar

               Gerast áskrifandi

Gætið að réttu netfangi.

Netfang: