12. nóvember 2009
Eitt lítið opið lettersbréf til Katrínar Jakobsdóttur frá Nýja heiminum

Þorkell Sigurður Harðarsson:

Kæra Katrín, hæstvirtur menntamálaráðherra og samflokksmaður minn:
 
Hér er eitt lítið opið lettersbréf til þín frá Nýja heiminum.  Ástæða þess að ég skrifa þér í dag er sú að ég verð að benda þér á innsláttarvillu í niðurskurðartillögum í málaflokki sem varðar atvinnu mína, kvikmyndagerð. Þar sem þú ert æðsti yfirmaður kvikmyndamála á Íslandi í dag finnst mér réttast að beina þessu til þín svo að þú kippir þessu í liðinn strax.
 
Þannig er að umsnúningarnir sem átt hafa sér stað í íslensku samfélagi síðasta árið eða svo hafa hvorki farið fram hjá mér né þér.  Þú situr allt í einu í ráðherrastól fyrir flokk sem hefur unnið stórsigur í síðustu kosningum eftir að hafa verið í stjórnarandstöðu frá stofnun hans. Ég, burtfluttur, sit úti í New York í mínum eldhússtól og fylgist með í gegnum tölvuna hvað allt er öfugsnúið og hvað mikið af furðulegum hlutum og gjörningum kemur upp á yfirborðið ? og nú síðast sá ég eitt furðuverkið birtast ekki alls fyrir löngu. En það sem kom mér mest á óvart var hvaðan það kom. Það kom frá þér, mín kæra Katrín.
 
Það sem ég er að tala um eru niðurskurðartillögur þíns ráðuneytis varðandi kvikmyndagerð á Íslandi. Í fyrra voru framlög til Kvikmyndamiðstöðvar skorin niður um 15% eftir að Ísland fór á hausinn með hvelli eftir fjármálagjörninga misviturra manna og þenslustefnu misþroska stjórnarflokka. Gott og vel, Þorgerður Katrín var menntamálaráðherra þá og þetta skrifast á hana, hennar flokk og hrunið. Ég held að flestir hafi ákveðinn skilning á því ? í ljósi ástands þjóðarinnar og stjórnarfarsins í hruninu. EN ári síðar ? eftir að þú hefur verið að vinna í niðurskurðartillögum með þínum ráðgjöfum, embættismönnum og starfsmönnum menntamálaráðuneytisins koma fram undarlegar niðurstöður ykkar vinnu. Að meðaltali er niðurskurður til menningarmála einhversstaðar á bilinu 5-10%. Ég held að allir hugsandi menn hafi skilning á því ? úr því sem komið er. En ég veit ekki um neinn sem skilur af hverju niðurskurður til kvikmyndagerðar er 34%.
 
Þetta verður  eiginlega að skrifa í bókstöfum svo að enginn haldi að hér sé um innsláttarvillu að ræða: Þrjátíu og fjögur prósent.
 
En um daginn kom yfirlýsing frá FK, félagi kvikmyndagerðarmanna, þar sem talað var um að þessi 34% hlyti að hafa verið innsláttarvilla. Þegar ég sá það, rann upp fyrir mér ljós. Þetta hefur kannski átt að vera 3-4% ? eða hvað? Kannski hefur enginn viljað benda ykkur í menntamálaráðuneytinu á þessa innsláttarvillu hjá ykkur ? en hér með geri ég það og bíð eftir leiðréttingunni. En á meðan ég og mínir kollegar bíða heldur þú á fjöreggi íslenskra kvikmynda í hendi þér og við bíðum á milli vonar og ótta eftir úrskurði þínum.
 
Þegar verið var að undirbúa síðustu kosningar var ég einn af þeim sem kaus í prófkjöri VG. Þú varst ein af þeim sem ég kaus ? vegna þess að mér leist vel á málflutning þinn og ég hafði trú á þér sem stjórnmálamanni. Ég var viss um að þú værir ekki haldin þeim leiða sið stjórnarherra síðustu áratuga að geta ekki viðurkennt mistök og benda bara á aðra þegar eitthvað af sökinni liggur hjá þeim sjálfum. Síðan í kosningunum kaus ég þig og þinn flokk og studdi við ykkur alla leið með ráð og dáð og fékk mína ósk uppfyllta þegar VG settist í stjórn. Og mikil var gleði mín þegar ég sá að þú settist í stólinn í menntamálaráðuneytinu.
 
En jafnmikil og gleði mín var þegar þú tókst við lyklavöldum í ráðuneytinu ? þá var furða mín og vantrú meiri þegar ég sá niðurskurðartillögurnar þínar til handa kvikmyndagerðar í landinu. Ég ætla ekki að telja upp margfeldiáhrif hverrar krónu sem lögð er í kvikmyndagerð, landkynninguna, gjaldeyrissköpunina eða lýsa því hversu mannfrekur iðnaður kvikmyndagerð er. Það er hlutverk annara sem hafa valist í forystusveit kvikmyndagerðarmanna. EN ég ætla að biðja þig um að íhuga meðalhóf og jafnræði ? það eru þeir hlutir sem ég kaus þig út á. Ég kaus þig ekki út á þetta furðuverk sem birtist alþjóð í formi tillögu um 34% niðurskurð á framlögum til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Þannig að á meðan ég fæ ekki fréttir um að þú hafir dregið til baka innsláttarvilluna hvimleiðu íhuga ég vandlega hvar ég beiti mínum kröftum til að auka jafnræði og réttlæti á Íslandi. Mér sýnist allavega að það sé umhugsunarvert hvert stefnir með þessu áframhaldi.
 
Með vinsemd og virðingu ? þinn félagi í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi fyrir alla.

Þorkell Sigurður Harðarson

               Gerast áskrifandi

Gætið að réttu netfangi.

Netfang: