Börkur Gunnarsson: Manifestó: Hvernig skal gera bíómyndir í endurreisninni á Íslandi
1. Aðeins skal gera myndir um samtímann. Ekki aðeins vegna skyldu okkar til að skýra samtímann heldur krefst kreppan þess.
2. Kvikmyndavélin er penni kvikmyndagerðamannsins. Of lengi hefur kvikmyndagerðalistin verið undir ofurvaldi framleiðendafyrirtækja og rithefðarinnar. Þannig hefur rithefðin lagt fram skrifuð handrit áður en kvikmyndavélinni er mundað og framleiðendur hafa styrkt þá hefð því þeir vilja hafa sérhvern útgjaldalið á hreinu áður en af stað er haldið. Þessu skal ljúka. Skrifa skal handritið með kvikmyndavélinni!
3. Leikarar skulu koma sjálfir með fötin sín þannig að engin búningadeild er leyfileg.
4. Ekkert smink er leyfilegt nema það sem leikarar nota sjálfir á sig í daglega lífinu. Þeir skulu líka setja það á sig sjálfir.
5. Kvikmyndateymið skal vera maximum 7 manns, best ef hægt er að ná því niður í 5 stykki. 1 leikstjóri, 1 framkvæmdastjóri, 1 alt-mulig manneskja, 1-2 kvikmyndatökumenn og 1-2 hljóðmenn; samtals 5 ? 7 manna hópur.
6. Bannað að bíða eftir veðri.
7. Bannað að bíða eftir nokkrum sem er seinn á tökustað, byrja skal án þess sem ekki er mættur, alveg sama hvort það er tökumaður eða leikari; nýta skal sérhverja mínútu.
8. Ekkert ljós nema í algjörum neyðartilvikum. Notast skal við dagsbirtuna og þau ljós sem eru á þeim stað þegar tekið er inni.
9. Karakterinn og sagan er miðpunktur alls. Sagan þarf að vera úr nánasta umhverfi þínu, karakterarnir þurfa líka að vera það. Og helst skal nota vini og vandamenn í aukahlutverkin.
10. Bannað er að taka á filmu nema hægt sé að sýna fram á að það sé einhverra hluta vegna ódýrra. Kreppan krefst ódýrustu leiðarinnar.
11. Tökudagar mega ekki fara fram yfir 20 daga.
12. Sýnið meisturum kvikmyndagerðarinnar sem hafa verið á undan ykkur lotningu á meðan þið eruð í námi en þegar komið er á tökustað þá skulið þið engan virða og helst að brjóta allar þær reglur sem þeir hafa sett í það minnsta einu sinni.
13. Ef það þarf að skera niður fjárhagsáætlun myndarinnar skal byrja á því að skera laun framleiðanda, leikstjóra og framkvæmdastjóra niður í núll áður en gengið er á annað. Annaðhvort eru foringjar teymisins í þessu af ástríðu eða þeir eru óhæfir til að leiða teymið.
14. Ef enn vantar uppá fjárhaginn að þá þarf að selja undan sér. Bíómyndir eru í fyrsta sæti. Bíómyndin, sagan, er barnið þitt, foreldri þitt; allt það sem skiptir máli. Hana verður að segja. Hvort sem þú verðir að selja húsið ofan af þér, makann frá þér eða fötin af þér.
15. Bannað að nota neinar tæknibrellur nema þær séu ókeypis.
16. Skera skal niður öll þau tæki sem hægt er að skera af framleiðslunni. Kvikmyndagerð gengur út á sögu, fólk og mannúð. Með árunum hafa sífellt fleiri fyrirtæki náð að gera framleiðslu tækja sinna nauðsynlega í kvikmyndagerðinni með því að búa til fólk sem krefst tækja og tóla til að leika sér. Back to the basic ? kvikmyndavélin er penninn og leikararnir eru einsog blekið sem rennur úr honum þegar vélinni er mundað.
Börkur Gunnarsson
Á fimmtudaginn verður haldin boðsýning á íslensk-tékknesku bíómyndinni Sterkt kaffi í Laugarásbíó klukkan 18 í tilefni af því að hún verður nú loksins gefin út á dvd. Samtímis verður tilkynnt manifestó fyrir íslenskar bíómyndir næstu ára. Kreppubíómyndir ? hvernig skal gera bíómyndir í endurreisn Íslands. Börkur Gunnarsson gerði Sterkt kaffi (Silný kafe) fyrir aðeins um 20 milljónir í Tékklandi árið 2004 en samt sem áður sló hún í gegn í Tékklandi, vann alþjóðleg verðlaun og fór á margar af virtustu hátíðum heims. Hér á Íslandi hlaut hún Menningarverðlaun DV sem besta íslenska mynd ársins 2004. Börkur Gunnarsson gerði nú í sumar aðra bíómyndina sína og fylgdi sömu kreppureglunum og mun hún einnig vera ódýr í framleiðslu en rík þegar litið er til innihaldsins. Sú mynd heitir Þetta reddast og í aðalhlutverkum þar eru Björn Thors, Jón Páll Eyjólfsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Halldór Gylfason, Ingvar E. Sigurðsson og Edda Björgvinsdóttir. Myndin verður frumsýnd vorið 2010.
Börkur hafði þetta að segja um manifestóið: "Kreppan á Íslandi hefur sett kvikmyndagerðina í hættu og við því þarf að bregðast. Nú skal einbeita sér að sögunni, karakterunum og gera bíómyndir sem þjóna grunnhugmyndum kvikmyndalistarinnar." Hann gerði Sterkt kaffi undir þessum sömu kvöðum og ætlaði upphaflega að kynna heiminn fyrir manifestóinu þá og fylgja strax í kjölfarið með aðra bíómynd, hálfu ári síðar. "En kaffið var svo sterkt að ég var algjörlega uppgefinn eftir hana þannig að það varð ekki úr þessu þá."
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.