Það er vert að benda lesendum á tvær greinar til viðbótar um niðurskurðinn til Kvikmyndasjóðs. Ágúst Guðmundsson skrifar í Fréttablaðið greinina Kvikmyndir skornar niður þar sem segir meðal annars:
"Íslenskar kvikmyndir eru hið raunverulega þjóðarleikhús ? myndirnar eru teknar upp um land allt og þær fara auðveldlega fyrir augu allra, hvar á landinu sem fólk býr. Þær hafna gjarnan í sjónvarpinu, þar sem þær hafa löngum verið helsta leikna innlenda efnið, einkum á stórhátíðum. Enn fremur eru þær fluttar til útlanda, sýndar í kvikmyndahúsum og í sjónvarpi víða um heim. Kunnugir telja að fátt selji Ísland betur en íslenskar kvikmyndir. Þær eru hin óbeina auglýsing sem gagnast betur en bein sölumennska. Á tímum niðurlægingar Íslands er meiri þörf á slíku en nokkru sinni fyrr." Greinina alla má lesa hér.
Þá ritar Ásgrímur Sverrisson, fyrrverandi ritstjóri þessa vefrits og núverandi ristjóri IcelandCinemaNow, ágæta ádrepu sem ber nafnið Explanation Wanted - Útskýringa krafist. Þar eru afleiðingarnar reifaðar en þó endað á bjartsýnistón - "er ekki best að afgreiða þetta allt saman sem innsláttarvillu og gleyma þessu?" Greinina má alla lesa hérna en eins er ástæða til að staldra við á síðunni - sem og auðvitað að mæla með henni við erlenda vini og kunningja, enda líklega handhægasta upplýsingaveita sem finnst um íslenskar kvikmyndir á ensku.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.