Ólafur Jóhannesson: Maður getur skilið að það þurfi að skera niður í listgreinum, hinsvegar er sá niðurskurðarmunur á framlagi til kvikmyndasjóðs og annarra listgreina svo mikill að það jarðar við annahvort prentvillu eða klára geðveiki. Með þessu verður ekki einasta okkur skotið afturábak um fimmtán ár heldur mun sú þekking og hæfni sem hefur byggst hægt og örugglega upp hljóta verulegan skaða af.
Ég hreinlega trúi því ekki að þetta verði látið ganga yfir, rúmlega 30% er klikkun. Það hefur ávallt verið erfitt að vera kvikmyndagerðarmaður hér en ég efast ekki um þetta hvetji menn til landflótta og þ.m.t. undirritaðan. Menn hafa bent á augljósan ávinning af ferðamönnum sem myndirnar margfalda hingað til lands á ári hverju, það er ótrúlegt að sá sterki punktur virðist virtur að vettugi. Fyrir utan það að íslensk efni er mun vinsælla en erlent. Að spegla ekki menningu landsins framan í landann er menningarglæpur.
Ég finn ekki nægilega sterk orð til að lýsa þeim tilfinningum sem þetta rífur upp, ég myndi vilja heyra hver rökin eru á bakvið þetta rugl. Þú getur ekki skorið framlög til einnar greinar niður um rúm 30% og snert hinar einungs lauslega.
Ólafur Jóhannesson
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.