- viðtalsþættir við íslenska kvikmyndaleikstjóra.
Á dagskrá Sjónvarpsins á mánudagskvöldum um kl. 20:20
Taka tvö er ný þáttaröð á dagskrá Sjónvarpsins þar sem Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðar-
maður og ritstjóri Lands & sona (sjá mynd), málgagns kvikmyndagerðar-manna, ræðir við íslenska kvikmyndaleikstjóra um myndir þeirra. Brugðið er upp völdum atriðum úr myndunum og rætt um hugmyndirnar sem að baki þeim liggja. Um dagskrárgerð sér Jón Egill Bergþórsson.
TAKA TVÖ: Þráinn Bertelsson
Mánudagur 17. janúar kl. 20:20
Þráinn lauk námi í kvikmyndaleikstjórn frá Dramatiska Institutet í Stokkhólmi 1977. Að því loknu starfaði hann um skeið sem dagskrárgerðarmaður við Sjónvarpið og stjórnaði þar meðal annars gerð sjónvarpsmyndar í tveimur hlutum um Snorra Sturluson.
1981 frumsýnir hann sína fyrstu bíómynd, Jón Odd og Jón Bjarna, sem gerð var eftir skáldsögum Guðrúnar Helgadóttur um samnefnda tvíbura. 1983 sendir hann frá sér kvikmyndina Nýtt líf, fyrstu myndina í gamanþríleiknum um þá þokkapilta Þór og Danna. Önnur myndin, Dalalíf, var sýnd 1984 og sú þriðja birtist 1985. Það sama ár sýndi hann einnig spennumyndina Skammdegi.
Fimmta bíómynd Þráins var Magnús frá árinu 1989 og var hún meðal annars tilnefnd til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þá var sjónvarpsþáttaröðin Sigla himinfley sýnd 1994 og naut mikilla vinsælda. Loks birtist Einkalíf árið 1995.
TAKA TVÖ: Hilmar Oddsson
Mánudagur 24. janúar kl. 20:20
Hilmar útskrifaðist í kvikmyndaleikstjórn frá Kvikmyndaháskólanum í Munchen árið 1986. Sama ár frumsýndi hann fyrstu bíómynd sína, Eins og skepnan deyr. 1995 birtist önnur bíómynd hans, Tár úr steini, sem byggð er á ævi tónskáldsins Jóns Leifs. Þriðja mynd Hilmars er Sporlaust frá árinu 1998 og 2004 sendi hann frá sér kvikmyndina Kaldaljós sem byggð er á skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur.
Meðal helstu annarra verka Hilmars eru sjónvarpsmyndirnar Öskubuska og maðurinn sem átti engar buxur, Sjóarinn, spákonan, blómasalinn, skóarinn, málarinn og Sveinn og Dagurinn í gær. Hilmar hefur auk þess komið að fjölbreytilegri dagskrárgerð fyrir sjónvarp.
TAKA TVÖ: Hrafn Gunnlaugsson
Mánudagur 31. janúar kl. 20:20
Hrafn lagði stund á nám í leikhúsfræðum og kvikmyndagerð við Dramatiska Institutet í Stokkhólmi á fyrri helmingi áttunda áratugsins. Að því loknu vann hann nokkurn fjölda sjónvarpsmynda og má þar meðal annars nefna Blóðrautt sólarlag, Silfurtunglið, Vandarhögg og gamanþáttaröðina Undir sama þaki.
Fyrsta bíómynd Hrafns er Óðal feðranna frá árinu 1980. Tveimur árum síðar sýnir hann kvikmyndina Okkar á milli og 1984 kemur svo Hrafninn flýgur, fyrsta myndin í þríleik hans um víkingatímabilið, en fyrir hana fékk hann meðal annars Gullbjölluna, verðlaun sænsku kvikmyndastofnunarinnar. Önnur myndin í fyrrnefndum þríleik, Í skugga hrafnsins, er sýnd 1988 og 1991 birtist sú þriðja, Hvíti víkingurinn, sem jafnframt var gerð sem sjónvarpsþáttaröð í fjórum hlutum.
Sjötta bíómynd Hrafns er Hin helgu vé frá árinu 1993 og 99 sýnir hann okkur túlkun sína á píslarsögu Jóns Magnússonar í Myrkrahöfðingjanum.
Nýjasta verk Hrafns er Opinberun Hannesar, sem sýnd var í byrjun árs 2004.
Hrafn hefur að auki unnið fjölda verka fyrir sjónvarp og gegndi á sínum tíma stöðu dagskárstjóra innlendrar dagskrárdeildar Sjónvarpsins, auk þess sem hann var framkvæmdastjóri stofnunarinnar um skeið.
TAKA TVÖ: Guðný Halldórsdóttir
Mánudagur 7. febrúar kl. 20:20
Guðný hóf störf við kvikmyndagerð á áttunda áratugnum og lauk námi í kvikmyndagerð frá London International Film School árið 1981.
Eftir að hafa komið að framleiðslu og handritsskrifum nokkurra kvikmynda, þar á meðal Stellu í orlofi, leikstýrði Guðný sinni fyrstu bíómynd árið 1989. Það var Kristnihald undir jökli, sem gerð var eftir samnefndri skáldsögu föður hennar, Halldórs Laxness.
Hún hefur síðan leikstýrt þremur kvikmyndum í fullri lengd. Karlakórinn Hekla birtist 1992, Ungfrúin góða og húsið 1999 ? en sú mynd var einnig gerð eftir sögu Halldórs Laxness ? og 2002 fengu bíógestir að sjá meira af hinni ástsælu Stellu í kvikmyndinni Stella í framboði.
Guðný hefur að auki stjórnað gerð fjölda heimildarmynda og sjónvarpsþátta, gert leiknar sjónvarpsmyndir og tvenn áramótaskaup auk ýmissa skemmtiþátta. Þá hefur hún einnig skrifað handrit fyrir ýmsa aðra.
TAKA TVÖ: Friðrik Þór Friðriksson
Mánudagur 14. febrúar kl. 20:20
Leiðir Friðriks Þórs og kvikmyndarinnar hafa alla tíð legið saman. Á menntaskólaárum sínum rak hann meðal annars Fjalaköttinn, kvikmyndaklúbb framhaldsskólanna, en þar voru sýnd mörg af meistaraverkum kvikmyndasögunnar. Á fyrrihluta áttunda áratugsins gerði hann nokkrar tilrauna- og heimildarmyndir sem vöktu töluverða athygli. Ber þar hæst heimildarmyndina Rokk í Reykjavík frá 1982, en einnig má nefna Brennu-Njáls Sögu og Kúreka norðursins.
1987 frumsýndi hann fyrstu leiknu bíómynd sína, Skytturnar. Fjórum árum síðar birtist hin ástsæla Börn náttúrunnar, sem tilnefnd var til óskarsverðlauna og er einhver mest verðlaunaða mynd íslenskrar kvikmyndasögu. Friðrik Þór hefur regulega sent frá sér myndir síðan. Bíódagar 94, Á köldum klaka 95, Djöflaeyjan 96, Englar alheimsins 2000, Fálkar 2002 og nú síðast Næsland 2004 en vinnslu þeirrar myndar var ólokið þegar upptökur þáttarins fóru fram.
Friðrik Þór hefur jafnframt verið einn öflugasti kvikmyndaframleiðandi landsins og hefur sem slíkur komið að gerð tuga kvikmynda, bæði hérlendis og erlendis.
TAKA TVÖ: Ágúst Guðmundsson
Mánudagur 21. febrúar kl. 20:20
Ágúst lauk námi í kvikmyndaleikstjórn frá The National Film School í Bretlandi árið 1977. Að námi loknu vann hann nokkrar sjónvarpsmyndir, þar á meðal Skólaferð og Litla þúfu.
Fyrsta bíómynd hans, Land og synir, var frumsýnd í janúar 1980 og markar upphafið að samfelldri framleiðslu íslenskra kvikmynda. Næstu árin kemur hver myndin á fætur annarri frá Ágústi; Útlaginn 1981, Með allt á hreinu 1982 - sem án efa er vinsælasta kvikmynd okkar Íslendinga fyrr og síðar - og síðan Gullsandur 1984.
Eftir þetta snýr Ágúst sér að vinnu fyrir sjónvarp og gerir m.a. sjónvarpsmyndina Ást í kjörbúð 1986 og síðan stóra alþjóðlega þáttaröð um Nonna og Manna, sem byggð er á bókum Jóns Sveinssonar og frumsýnd 1988. Einnig má nefna þáttaröðina Sea Dragon sem hann gerði fyrir breska sjónvarpsstöð.
1998 snýr Ágúst aftur á hvíta tjaldið með kvikmyndinni Dansinn, sem byggð var á skáldsögu hins færeyska William Heinesen. Þremur árum síðar kemur hann svo með Mávahlátur sem byggð er á samnefndri skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur.
Nýjasta verk Ágústs er Í takt við tímann, nokkurskonar framhald Með allt á hreinu. Vinnslu þeirrar myndar var ólokið þegar upptökur þáttarins fóru fram.
TAKA TVÖ: Kristín Jóhannesdóttir
Mánudagur 28. febrúar kl. 20:20
Kristín lagði stund á nám í bókmenntum, kvikmyndafræðum og kvikmyndaleikstjórn í Frakklandi á áttunda áratuginum. Fyrsta bíómynd hennar, Á hjara veraldar, var frumsýnd 1983 og vakti athygli fyrir nýstárleg efnistök og óvenjulega nálgun. Önnur mynd hennar, Svo á jörðu sem á himni, birtist 1992 og var þar á ferðinni stórt og metnaðarfullt verk sem Norðurlandaþjóðirnar komu einnig að ásamt Íslendingum og Frökkum.
Sjónvarpsmyndir Kristínar hafa einnig vakið mikla athygli og jafnvel deilur og má þar nefna Líf til einhvers og Glerbrot.
Kristín hefur einnig sett fjölda verka á svið í leikhúsi.
TAKA TVÖ: Þorsteinn Jónsson
Mánudagur 7. mars kl. 20:20
Þorsteinn lagði stund á nám í kvikmyndagerð við hinn kunna kvikmyndaskóla FAMU í Prag og útskrifaðist þaðan 1971. Hann gerði síðan nokkurn fjölda heimildamynda fyrir Sjónvarpið og urðu margar þeirra mjög umdeildar. Má þar nefna Fisk undir steini, Gagn og gaman, Lífsmark og Öskudag. Fyrsta bíómynd Þorsteins er Punktur, punktur, komma, strik eftir samnefndri skáldsögu Péturs Gunnarssonar og var hún frumsýnd 1981 við miklar vinsældir. Þremur árum síðar sýnir hann Atómstöðina eftir skáldsögu Halldórs Laxness sem einnig fékk mikla aðsókn. Þriðja mynd hans er Skýjahöllin eftir sögu Guðmundar Ólafssonar um Emil og Skunda frá 1994.
Þorsteinn hefur einnig haldið áfram að gera heimildarmyndir og meðal nýlegra verka hans eru Hanna frá Gjögri, Við byggjum hús og Rockville.
Þorsteinn hefur einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í kvikmyndageiranum og var m.a. formaður Félags kvikmyndagerðarmanna og síðar forstöðumaður Kvikmyndasjóðs Íslands.
TAKA TVÖ: Gísli Snær Erlingsson
Mánudagur 14. mars kl. 20:20
Gísli Snær hóf störf sem dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu um miðjan níunda áratuginn. Undir lok hans hóf hann nám í kvikmyndaleikstjórn við FEMIS kvikmyndaskólann í París og útskrifaðist þaðan 1994. Fyrsta bíómynd hans, Stuttur frakki, leit dagsins ljós 1993 og naut hún mikilla vinsælda. Önnur bíómynd Gísla Snæs er Benjamín dúfa frá árinu 1995 og er hún byggð á samnefndri verðlaunaskáldsögu Friðriks Erlingssonar. Sú mynd hefur sópað að sér fjölda verðlauna um allan heim. Árið 2000 sýndi hann þriðju mynd sína, Íkingút, sem byggð var á handriti Jóns Steinars Ragnarssonar og hefur einnig hlotið mörg verðlaun á alþjóðlegum hátíðum.
Gísli Snær hefur einnig unnið nokkur leikin verk fyrir sjónvarp og má þar meðal annars nefna Blóm handa frúnni eftir handriti Friðriks Erlingssonar. Hann hefur auk þess gert fjölda sjónvarpsauglýsinga bæði heima og erlendis.
TAKA TVÖ: Óskar Jónasson
Mánudagur 21. mars kl. 20:20
Óskar lagði stund á nám í myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands en hélt svo til Bretlands 1985 þar sem hann nam kvikmyndaleikstjórn við The National Film and Television School. Fyrsta bíómynd hans er Sódóma Reykjavík frá 1992 og hlaut hún ekki aðeins mikla aðsókn heldur hefur hún einnig fengið nokkurskonar "cult status" í myndbandstækjum landsmanna.
Önnur bíómynd hans er Perlur og svín frá 1997. Óskar hefur einnig unnið fjölda sjónvarpsmynda og má þar m.a. nefna Rót, 20/20 og Úr öskunni í eldinn. Hann hefur einnig leikstýrt gamanþáttaröðum á borð við Fóstbræður og Svínasúpuna, sem og Áramótaskaupi Sjónvarpsins tvisvar.
Óskar hefur einnig stjórnað fjölda myndbanda og sjónvarpsauglýsinga.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.