Mýrin hlaut Edduverðlaunin sem bíómynd ársins á verðlaunahátíðinni sem fram fór í gærkvöldi á Hótel Nordica. Myndin hlaut að auki fjórar Eddur; fyrir leikstjórn, leikara ársins í aðal- og aukahlutverki og tónlist. Kvikmyndin Börn hlaut Edduna fyrir handrit ársins. Stelpurnar var valið leikið sjónvarpsefni ársins, Skuggabörn heimildamynd ársins, Kompás sjónvarpsþáttur ársins, Jón Ólafs skemmtiþáttur ársins og Anna og skapsveiflurnar stuttmynd ársins. Þá hlaut Magnús Scheving heiðursverðlaun ÍKSA í ár úr hendi forseta Íslands og Ómar Ragnarsson var valinn vinsælasti sjónvarpsmaður ársins.
Óttar Guðnason hlaut verðlaun fyrir kvikmyndatöku í A Little Trip to Heaven stuttmyndin Presturinn, djákninn og brúðguminn fékk Hvatningarverðlaun Landsbankans.
´
Handhafar Eddu 2006:
S J Ó N V A R P S Þ Á T T U R Á R S I N S
Kompás
Framleiðandi NFS / Stöð 2. Stjórnandi Marteinn Þórsson. Ritstjóri Jóhannes Kr. Kristjánsson.
H E I M I L D A M Y N D Á R S I N S
Skuggabörn
Framleiðandi Í einni sæng. Leikstjórn Lýður Árnason og Jóakim Reynisson. Handrit Þórhallur Gunnarsson og Lýður Árnason.
S K E M M T I Þ Á T T U R Á R S I N S
Jón Ólafs
Framleiðandi Ríkisútvarpið-Sjónvarp. Stjórnandi Jón Egill Bergþórsson. Umsjón Jón Ólafsson.
L E I K I Ð S J Ó N V A R P S E F N I Á R S I N S
Stelpurnar
Framleiðandi Sagafilm, Magnús Viðar Sigurðsson, Kristinn Þórðarson og Harpa Elísa Þórsdóttir. Leikstjóri Ragnar Bragason. Handrit Sigurjón Kjartansson og fleiri.
K V I K M Y N D Á R S I N S
Mýrin
Framleiðandi Sögn / Agnes Johansen, Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur. Leikstjóri Baltasar Kormákur. Handrit Baltasar Kormákur.
S T U T T M Y N D Á R S I N S
Anna og skapsveiflurnar
Framleiðandi Caoz / Hilmar Sigurðsson og Arnar Þórisson. Leikstjóri Gunnar Karlsson. Handrit Sjón.
Ú T L I T M Y N D A R
Óttar Guðnason
fyrir kvikmyndatöku í A Little Trip to Heaven.
H L J Ó Ð & T Ó N L I S T
Mugison
fyrir tónlist í Mýrinni og A Little Trip to Heaven.
L E I K S T J Ó R I Á R S I N S
Baltasar Kormákur
fyrir Mýrina
H A N D R I T Á R S I N S
Börn
Höfundar Ragnar Bragason, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og leikhópurinn.
L E I K A R I Á R S I N S
Ingvar E. Sigurðsson
fyrir hlutverk sitt í Mýrinni
L E I K A R I Á R S I N S Í A U K A H L U T V E R K I
Atli Rafn Sigurðarson
fyrir hlutverk sitt í Mýrinni
V I N S Æ L A S T I S J Ó N VA R P S M A Ð U R Á R S I N S
Ómar Ragnarsson
Sjónvarpinu
H E I Ð U R S V E R Ð L A U N Í K S A 2 0 0 6
Magnús Scheving
Latibær
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.