Heimildamyndin Fálkasaga eftir Þorkel Harðarson og Örn Marínó Arnarson verður heimsfrumsýnd á Tribeca kvikmyndahátíðinni sem fram fer í New York dagana 21. apríl - 2. maí. Þar tekur hún þátt ásamt ellefu öðrum myndum í keppni heimildamynda. Fálkasaga fjallar um magnaða atburðarrás sem veiddir fálkar blandast inn í. Skyggnst er inn í lokaðan heim sem örfáir aðilar í heiminum hafa haft aðgang að. Inn í söguna fléttast meðal annars umhverfisvernd heimspólitík og hryðjuverk. Myndin hefur verið fimm ár í framleiðslu og verður frumsýnd á Íslandi í haust.
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.