Vefþáttaröð Ólafs Jóhannessonar, Circledrawers eða Hringfarar, hefur verið klippt niður í þrjá þætti sem sýndir verða á Skjá einum um páskana. Þættirnir segja frá hópi engla sem kallast Hringfarar. Þeir eru neðstir í fæðukeðju englastéttarinnar. Verkefni þeirra geta verið allt frá því að blómapottur detti niður á rétta manneskju eða að hjálpa fólki yfir landamæri lífs og dauða. Draumur hvers Hringfara er að ná að klára lista af verkefnum áður en hann deyr svo hann geti fengið verðlaunin, að fæðast sem manneskja. Þetta er nær ómögulegt þar sem englaheimurinn er hægvirkur eins og skattstofa full af klaufaskap og seinagangi. Fjöldi þekktra íslenskra leikara leikur í þáttunum auk Sopranos-stjarnanna Steve Schirippia og Sharon Angela.
Hægt er að horfa á þættina hér: http://www.youtube.com/user/circledrawers
Gerast áskrifandi
Gætið að réttu netfangi.